Danska lífið

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Ég get nú ekki annað en skrifað um gærdaginn.

Við fórum á leikritið sem 6. bekkur í Elsted skóla var að sýna. Krakkarnir stóðu sig allir frábærlega vel og var þetta hin besta skemmtun. Litla snúlla var með okkur og var hún að fíla tónlistina í botn því hún nánast dansaði allan tímann. Hervar minn sat fremstur með Ylfu vinkonu sinni til þess að geta séð systur sína almennilega. Hann kvartaði yfir því um daginn að krakkarnir í skólanum væru að angra hann og segja að hann ætti systur sem væri svo góð söngkona, hann var frekar stoltur af þessu öllu þó að hann vildi láta þetta líta út fyrir að það væri verið að bögga hann!!

Margrét stóð sig eins og hetja, söng svo óskaplega fallega að fólk stóð upp fyrir henni og klappaði og stappaði í gólfið, annað eins hef ég ekki séð. Þau voru klöppuð upp og tók hún þá aftur lagið og gerði það að miklum hetjuskap. Við foreldrarnir gátum vart komið upp orði því við vörum með tárin í augunum og kökkinn í hálsinum.
Gunni var á myndavélinni allan tíman og munum við senda myndbandið heim, það er eitthvað hrist meðan dóttir okkar söng því hann sagðist hafa orðið svo hrærður að hann ætti erfitt með að halda fókus á myndavélinni :)

Það skemmtilegasta af öllu við þetta leikrit er að allir verða/fá að vera með og þú ert látinn helst í það sem þú hefur áhuga á, t.d. þeir sem vilja vera í hljómsveitinni þeir fá að prófa það, þeir stóðu sig ótrúlega vel hjómsveitargæjarnir og var Snorri þar á meðal.

Eftir leikritið var fællesbord þar sem krakkarnir og foreldrar sátu saman í huggulegheitunum og spjölluðu og átu saman.

Við foreldrarnir og Margrét höfðum ekki undan við að taka á móti fallegum orðum um dóttur okkar frá öðrum foreldrum og börnum, gaman að sjá hér hvað krakkarnir eru duglegir að hrósa hvort öðru.

Jæja best að hætta þessu áður en þetta verður eitthvað klisjukennt hjá mér, en ég er bara að rifna úr stolti og get ekkert að því gert:)

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Thad er svo gaman ad heyra hvad allt gengur vel hja ykkur. Og hvad thid eigid frabær børn. Til hamingju Margret, med arangurinn :)

kvedjur ur soltuninu, Erla

5:34 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ég verð nú bara að viðurkenna það að ég fór eiginlega bara að háskæla þegar að Margrét söng. Tárin láku niður kinnarnar og ég var með kökkinn í hálsinum....

..hún er alveg ótrúleg stelpan. Þið gerið ykkur vonandi grein fyrir því að þið eruð með alveg einstaklega hæfileikaríkan einstakling í höndunum og að því þarf að hlúa (ég skal hjálpa til við það;o))

Hún var líka eitthvað svo eðlileg á sviðinu...það var eins og henni liði bara vel þarna uppi;o)

En takk fyrir frábæra kvöldstund;o)

6:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hjartanlegar hamingjuóskir með dóttur ykkar, hún hefur greinilega brætt sig í hjörtu Lystrup búanna sem voru á sýningunni, verst að maður skuli ekki hafa haft tækifæri til að horfa...

Kveðja frá Nínu...
Helga

7:03 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með dótturina.
Mikið hefði nú verið gaman að sjá hana þarna uppi á sviðinu.
Vonandi á maður bara eftir að sjá meira af henni í framtíðinni.

Kveðja, Kristrún.

7:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það er óviðráðanlegt að fá kökk í hálsin og tárin koma fram þegar maður upplifir það sem þið upplifðuð í gær - Mig dauðlangar að sjá þetta hjá þeim og myndi gera það ef bíllinn væri í lagi. En innilega til hamingju með dóttluna ég efast ekki um að hrósin hafi verið verðskulduð.

8:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég fékk nú bara kökk í hálsinn við að lesa þetta! Til hamingju með stelpuna og mikið ofsalega langar mig á þessa sýningu. Hún á ekki langt að sækja þetta og mikið rosalega hafiði verið stollt. Mig hlakkar til að fylgjast með henni Margréti Sögu í framtíðinni og vona að einhvern tíman fái ég að sitja úti í sal og hlusta á hana syngja.

8:39 e.h.  
Blogger Kalli said...

Mikið er gaman að lesa af svona hetjudáðum. Haltu endilega áfram að syngja Margrét, ég vona að ég eigi eftir að heyra í þér einhverntíma seinna.

Og ertu svo farin að spila á gítar líka?

6:00 e.h.  
Blogger Christel said...

Takk fyrir öll hlýju orðin og gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með.

Já Kalli hún er nú eitthvað að fikta við gítarinn en hefur svo sum ekki mikinn áhuga, pabbi hennar er að kenna henni gripinn, abbababba lög og svoleiðis... annars eru systkinin að reyna að skrapa saman peningum fyrir trommusetti sem þau hafa áhuga bæði að læra á.

11:06 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home